Auðlindir, náttúra og menningarminjar

Auðlindir, náttúra og menningarminjar

Ef þú hugsar um ofangreind atriði, hverjar ættu helstu áherslur bæjarins að vera? <a href="https://www.w3schools.com">Visit W3Schools</a>

Points

hfj.is/UmhverfiAudlind

Punktarnir í drögunum ykkar eru mjög góðir og mikilvægt að hafa þá að leiðarljósi við allar framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru í bæjarfélaginu. Ef farið hefði verið eftir þessum punktum þá hefði verið hægt að stöðva verkefni eins og Coda Terminal í fæðingu, því það gengur gegn öllum þessum áherslum sem koma fram í drögunum hjá bænum.

Mikilvægt er að móta stefnu um framtíð iðnaðarsvæðisins við Vellina í Hafnarfirði. Íbúabyggðin hefur stækkað umtalsvert og hverfið orðið eitt af stærstu hverfum bæjarins. Stækkun iðnaðarsvæðisins og mengandi umsvif á því svæði eru ekki í takt við stækkandi íbúabyggð. Íbúar bæjarins þurfa að fá að koma að mótun stefnu fyrir iðnaðarsvæðið og hvernig það getur átt framtíð í sátt og samlyndi við nærumhverfi íbúa þar sem tryggt er að íbúar séu öryggir og líði vel.

Mikilvægt að móta stefnu um nýtingu vatnsauðlinda Hafnarfjarðar. Hver er staða vatnshlotsins í dag, hvernig er auðlindin best nýtt með það í huga að vernda magn og gæði hennar til framtíðar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information